Ég þekkti einu sinni mann, Jón hét hann, hann vann og vann. Jón var sjúkur maður aldrei glaður frekar staður. Eitt sinn lagðist Jón í dvala oní bala, sem fullur var af grænum froskum frekar sposkum jafnvel skoskum. Hann lá með þeim í hægðum sínum, ekki mínum og ekki þínum bara froskahóp og grænum svínum. Veiktist Jón við baðið illa, fékk kvilla sem erfitt var að stilla. Dró á enda Jón til dauða, skildi eftir síðu auða í ævisögu kauða.
Æ þetta er bara einn af þessum dögum sem þarf að klára og það er víst betra að drepa tímann áður en tíminn drepur mann.
Góða helgi.
Friday, January 19, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Knus og kram til ykkar allra...góða skemmtun á næstu helgi.
Í Álaborg með þig 3. feb!! Ætla að halda partey:) Off you go!!
Post a Comment